Aukin umferð í febrúar á höfuðborgarsvæðinu
minni aukning en hefur verið
Ólíkt Hringveginum þá jókst umferðin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar. Hún jókst þó minna en undanfarna mánuði eða um tæp þrjú prósent. Alls fóru 155 þúsund ökutæki á hverjum sólarhring um þrjú mælisvið Vegagerðarinnar og hafa þá aldrei verið fleiri.
Milli
mánuða 2017 og 2018
Áætlað er
að umferð hafi aukist um tæp 3% milli febrúarmánaða 2017 og 2018. Þó
þetta sé ekki mikil aukning miðað við undanfarna mánuði er hún mun meiri en úti á
Hringvegi þar sem samdráttur varð, sbr. fyrri frétt þar um .
Áætlað er að aldrei hafi fleiri bílar farið um lykilsniðin þrjú í febrúar, eða 155 þúsund ökutæki á sólarhring.
Frá
áramótum milli 2017 og 2018
Nú er
áætlað að umferð hafi aukist um 3,7% fyrir lykilsniðin þrjú miðað við sama tímabil á
síðasta ári. Þetta er helmingi minni aukning en átt hafði sér stað á sama
tíma á síðasta ári.
Umferð
vikudaga
Umferð
jókst í öllum vikudögum nema sunnudögum en þar mældist 2% samdráttur. Mest
jókst umferðin á miðvikudögum en fimmtudagar voru umferðarmestir og sunnudagar
umferðarminnstir. Það má ganga út frá því sem gefnu, miðað við umferðarmælingar,
að sunnudagar séu ætíð umferðarminnstir allra vikudaga á höfuðborgarsvæðinu.
Horfur út
árið 2018
Áætlaðar
horfur geta breyst mikið í upphafi hvers árs en þar getur tíðarfarið spilað
inní. Nú er gert ráð fyrir að umferð gæti aukist um 2-4% árið 2018 en
þetta skýrist betur eftir því sem líður á árið.
Virkir dagar og helgar
Hér til hliðar má sjá nýja útgáfu af súluriti sem sýnir umferðina um eitt mælisnið af þremur eftir umferðinni á virkum dögum og um helgar. Vel sést hvernig umferðin hagar sér mismunandi eftir því hvort er virkur dagur eða helgi, fyrst og fremst þá eftir því á hvaða tíma dags ekið er. Fleiri súlurit um hin sniðin má sjá í Talnaefni .
Athugið:
Rauntímagögn
eru grófrýnd sem gætu tekið breytingum við endanlega yfirferð.
Teljari á Reykjanesbraut bilaði í síðasta mánuði því eru umferðartölur áætlaðar í hluta mánaðarins. Umferðartölur frá þessum stað kunna því að taka breytingum síðar, þegar gögn taka að berast á ný.