Yfirborðsmerkingar
Merkingar á yfirborði vega eru ætlaðar til að:
- auðvelda vegfarendum akstur og þá sérstaklega í myrkri
- stýra umferð
- vekja athygli á hættum
- fræða vegfarendur um aðstæður sem framundan eru og þar sem sýna þarf aðgát af einhverju tagi
Yfirborðsmerkingar koma ekki í staðinn fyrir umferðarskilti heldur eru þær notaðar til að leggja áherslu á umferðarmerkingar sbr. sebramerkingar við gangbrautarskilti.
Handbók Yfirborðsmerkinga Kafli 1-5 síðast uppfært 12. janúar 2006
Handbók Yfirborðsmerkinga Kafli 6-10 síðast uppfært 3.maí 2006
(handbækur útgefnar af Þjónustudeild Vegagerðarinnar)