Fréttir
  • Lokanir 19.12.

Víðtækar lokanir vegna veðurs

Nær allt Suðvesturland lokað

19.12.2022

Allar aðalleiðir á Suðvesturhorni landsins eru lokaðar vegna veðurs og ófærðar og sama á við víðar á landinu, á Vesturlandi, Vestfjörðum og sunnan Vatnajökuls. Fylgdarakstur hefur verið reyndur á Reykjanesbraut en hann hefur gengi brösulega. Veðurútlit er ekki hagstætt og því er ekkert ferðaveður í dag 19. desember. 

Best er að fylgjast með á umferdin.is - athugið að þessi frétt er skrifuð um 09:15 og aðstæður breytast hratt og þá frekar í átt meiri lokana ef tekið er mið af veðurspá.

Það var í nótt sem byrjað var að loka vegunum enda aðstæður þannig. Fylgdarakstur hefur verið í gangi á Reykjanesbrautinni síðan snemma í morgun en á tíma þurfti að hætta við þar sem veðurhæð jókst og aðstæður versnuðu, en upp úr kl. 9:00 hófst hann aftur. 50 bílar eru teknir í einu í fylgdarakstur og ekki hægt að taka fleiri í einu öryggis vegna.

Á Snæfellsnesi norðanverðu eru vegir ófærir, sem og fyrir Jökul og Fróðárheiðin er líka lokuð. Sömu sögu er að segja af Vestfjörðum þar sem Steingrímsfjarðarheiði er lokuð, Klettsháls, Þröskuldar, Dynjandisheiði, Miklidalur og Hálfdán einnig.

Þá er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Jökulsárlóni.

Annarsstaðar er hált.

Búast má við því að þessar lokanir standi nokkuð lengi og einnig má búast við frekari lokunum.

Uppfært 09:40: Fylgdarakstri um Reykjanesbraut hefur verið hætt.