Fréttir
  • Umferð á Kringumýrarbraut í september 2021. Mynd: Bjarki Jóhannsson

Vegagerðin á Degi verkfræðinnar

Verkfræðingar frá Vegagerðinni flytja fjögur erindi 

11.10.2022

Dagur verkfræðinnar verður haldinn 21. október á Hilton Reykjavík Nordica. Fyrir liggur fjölbreytt og spennandi dagskrá sem hefst kl. 13.00. Samgöngur – verkfræðileg viðfangsefni eru á meðal umfjöllunarefna. Verkfræðingar frá Vegagerðinni eru á meðal fyrirlesara og munu fjalla um Borgarlínuna, Miklubrautarstokk, Sæbrautarstokk og Sundabraut en þessi verkefni eru undir hatti Vegagerðarinnar. Verkfræðingafélag Íslands stendur að þessum árlega viðburði.

Á Degi verkfræðinnar verða haldnir fyrirlestrar og kynningar í þremur opnum sölum á Hilton Reykjavík Nordica. Samgöngur – verkfræðileg viðfangsefni verða í brennidepli í sal A. Verkfræðingar sem starfa hjá Vegagerðinni munu halda áhugaverð erindi.  

Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðis Vegagerðarinnar, heldur erindi með yfirskriftinni Borgarlínan -  verkfræðileg viðfangsefni.

Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Vegagerðarinnar, heldur erindi um Sundabraut.

Kristján Árni Kristjánsson, samgönguverkfræðingur og verkefnisstjóri Sæbrautarstokks, og Sigurður Jens Sigurðsson, byggingarverkfræðingur og verkefnisstjóri Miklubrautarstokks, fjalla um stokka og jarðgöng á höfuðborgarsvæðinu.

Markmiðið með Degi verkfræðinnar er að kynna verkfræðina, spennandi verkefni og störf á því sviði og efla tengsl og samheldni meðal verkfræðinga og tæknifræðinga hér á landi. Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Nánari upplýsingar og skráning er að finna hér.