Fréttir
  • Úthlutun úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar 2022 í m.kr.
  • Fjöldi samþykktra umsókna 2022 eftir flokkum
  • Úthlutun fjárhæða 2022 eftir flokkum.

Úthlutað úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar

150 milljónir skiptast á milli 69 verkefna

1.3.2022

Úthlutun úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2022 er lokið en umsóknarfrestur rann út 28. janúar. Alls bárust 134 umsóknir og sótt var um samtals rúmlega 403 milljónir króna.

Sjóðurinn hafði að þessu sinni 150 milljónir krónur til ráðstöfunar. Rannsóknaráð Vegagerðarinnar valdi 69 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni. Verkefnin tengjast ýmsum þáttum sem varða vegagerð og byggingu samgöngumannvirkja á Íslandi. 

Samþykktar umsóknir skiptust þannig:

  • Verkfræðistofur:  24 umsóknir – samtals 44,8 m.kr.
  • Vegagerðin: 19 umsóknir – samtals 50,2 m.kr.
  • Háskólar: 20 umsóknir – samtals 36,1 m.kr.
  • Aðrar opinberar stofnanir og fyrirtæki: 3 umsóknir – samtals 11,7 m.kr.
  • Aðrir: 3 umsóknir – 7,2 m.kr.

Umsækjendur og verkefnisstjórar hafa fengið send skeyti um samþykkt eða synjun en upplýsingar um verkefni sem fengu styrk verða birtar á vef Vegagerðarinnar innan skamms.