Metumferð í júlí á Hringveginum
Fyrra met í júlí slegið
Umferðin á Hringvegi í nýliðnum júlí jókst um nærri sex prósent miðað við sama mánuð árið 2020. Met var slegið í mánuðinum en umferðin reyndist 2,3 prósentum meiri en í júlí 2019 þegar fyrra met var sett. Mest jókst umferðin á Austurlandi. Frá áramótum hefur umferðin aukist um tæp 10 prósent miðað við sama tíma fyrir ári. Útlit er nú fyrir að umferðin í ár geti aukist um 12 prósent en yrði eigi að síður minni en umferðin var árið 2019. Um Verslunarmannahelgi jókst umferðin mikið frá því í fyrra, en var heldur minni um Hellisheiði en um sömu helgi 2019 en sú sama um Hvalfjarðargöng.Milli mánaða
Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi
reyndist tæplega 6% meiri í nýliðnum júlí borið saman við sama mánuð á síðasta
ári. Umferðin reyndist mun meiri en spár gerðu ráð fyrir og var slegið
nýtt met í umferðinni um lykilteljarana 16. Fyrra metið var frá árinu
2019 og reyndist umferðin nú 2,3% meiri en gamla metið.
Umferð jókst á öllum landssvæðum en mest um teljarasnið á Austurlandi eða rúmlega 23% en minnst um höfuðborgarsvæðið eða 0,4%.
Umferð jókst einnig í öllum sniðum fyrir utan eitt, við Úlfarsfell en þar varð 1,3% samdráttur, en mest jókst umferð um mælisnið á Möðrudalsöræfum eða tæp 34%.

Uppsöfnuð umferð frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um tæp 10%, frá áramótum, borið
saman við sama tímabil á síðasta ári.
Umferð hefur aukist í öllum landssvæðum en mest um Austurland eða um rúmlega 20% en minnst um eða nálægt höfuðborgarsvæðinu eða um rúmlega 7%.
Umferð eftir vikudögum
Aukning hefur verið í umferð alla vikudaga, ef horft er til
tímabilsins frá áramótum, en mest hefur umferð aukist á sunnudögum eða um rúmlega
13% en minnst á fimmtudögum eða um 6%.
Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.
Verslunarmannahelgin
Mikið hefur verið rætt um umferðina, út frá höfuðborgarsvæðinu, um
verslunarmannahelgina svo að umferðardeild tók saman tvo helstu mælipunkta út frá
höfuðborgarsvæðinu, sem gætu gefið vísbendingu um streymið til og frá höfuðborgarsvæðinu, eða um Hellisheiði og um Hvalfjarðargöng.
Tekin var saman heildarumferð dagana frá fimmtudegi, fyrir verslunarmannahelgi, til mánudags frídags verslunarmanna, og hún borin saman við síðasta ár og umferðina árið 2019.
Á báðum stöðum reyndist umferðin mun meiri en á síðasta ári en talsvert minni um Hellisheiði en árið 2019 en nánasta sama umferð um Hvalfjarðargöng, sjá hér fyrir neðan:
2020 | 2019 | |
---|---|---|
Umferðin um Hellisheiði | + 14,4% | - 7,0% |
Umferðin um Hvalfjarðargöng | + 25,6% | + 0,2% |
Horfur út árið 2021
Umferð jókst mun meira í nýliðnum júlí en gert var ráð fyrir
og nú stefnir í að aukning umferðar, á yfirstandandi ári, verði líklegast í
kringum 12%. Gangi sú spá eftir yrði umferðin samt sem áður rúmlega 3%
minni en hún var árið 2019.