Fréttir
  • Nýi vefurinn er mun aðgengilegri, sérstaklega í snjalltækjum.
  • Færðarkortið verður nú þysjanlegt og mun auðveldara að nálgast allar upplýsingar.
  • umferdin.is

Nýr umferðarvefur Vegagerðarinnar

tekur við af velþekktu færðarkorti

17.10.2022

Vegagerðin opnar nýjan umferðarvef, umferdin.is, á morgunfundi nk. fimmtudag. Vefurinn mun sinna því hlutverki sem núverandi færðarkort Vegagerðarinnar hefur sinnt um árabil og flestir vegfarendur þekkja vel. Nýi vefurinn verður mun aðgengilegri, sérstaklega í snjalltækjum, og mun gefa mun meiri möguleika til framþróunar. 

Vefurinn umferdin.is birtir færðar- og veðurupplýsingar Vegagerðarinnar sem nú má sjá á færðarkorti á vefnum vegagerdin.is. Búið er að færa færðarkortið og þær upplýsingar sem því fylgja til nútímalegra horfs. Sem dæmi er færðarkortið nú þysjanlegt og mun auðveldara að nálgast allar upplýsingar. 

Nýr vefur mun einnig auðvelda Vegagerðinni að bæta og auka alla upplýsingagjöf og þróa til framtíðar. Í vetur verða bæði nýr og eldri vefur aðgengilegir og uppfærðir meðan reynsla fæst af hinum nýja vef. 

 

Dagskrá 

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar opnar fundinn  

Hvað felst í nýjum vef, Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar kynnir hinn nýja vef

TomTom Traffic interpretation of the Vegagerdin incident feeds, 
Robin Tenhagen frá TomTom segir frá reynslu fyrirtækisins af því að nýta umferðar- og færðarupplýsingar Vegagerðarinnar 

Systurvefurinn sjólag.is Helgi Gunnarsson, verkfræðingur á hafnadeild Vegagerðarinnar kynnir vefinn

 

Fundurinn hefst klukkan 9 í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ.  

Allir er velkomnir en óskað er eftir að fólk skrái sig hér: https://forms.office.com/r/ws9MGm76AU 

Fundinum verður einnig streymt fyrir þá sem heima sitja. 

Hlekkur á streymið; 

https://livestream.com/accounts/5108236/events/10648669 

Fyrirspurnir er hægt að senda inn í gegnum slido.com aðgangskóði: #umferdin