Fréttir
  • Gleðileg jól

Þjónustan um jólin

Aðeins leiðir sem hafa 7 daga þjónustu verða þjónustaðar jóladag.

18.12.2012

Upplýsingaþjónustan verður opin á aðfangadag jóla frá kl. 06:30 til kl 13:00 en þá tekur bakvakt við. Ef álag er mikið verður símaþjónustan lengd. Unnið verður eftir snjómokstursreglunum til a.m.k. 15:00 og miðað við að mokstursmenn hafi lokið störfum og verði komnir í starfsstöð eigi síðar en kl 16:00. Ef ástand er gott gæti þjónustu lokið fyrr.

Skiptiborð Vegagerðarinnar er lokað yfir hátíðirnar og einnig fyrir hádegi á aðfangadag en þá er opið í upplýsingaþjónustunni í síma 1777. Skrifstofur Vegagerðarinnar eru ekki opnar á aðfangadag.

Á jóladag verður upplýsingaþjónustan opin frá kl 10:00 til 12:00 en þá tekur bakvakt við. Venjulegur þjónustutímii verður á annan í jólum frá kl. 06:30 til 22:00 og þá er þjónustað samkvæmt snjómokstursreglunum.

Aðeins leiðir sem hafa 7 daga þjónustu verða þjónustaðar jóladag.

Á leiðum með minna en 7 daga mokstri, en með fastan þjónustudag á sunnudegi verður þjónustan flutt af sunnudegi yfir á laugardag og ef ástæða er til verður einnig þjónusta á sunnudegi.

Athugið einnig!

Færð á vegum er ekki könnuð á vettvangi nema á umferðarþyngstu vegum. Upplýsingar um færð og veður taka annars mið af gögnum frá veðurstöðvum og myndavélum.