Jafnmikil umferð í Héðinsfjarðargöngum
nákvæmlega sama umferð og í fyrra
Umferðin um Héðinsfjarðargöng er nánast sú sama í ár og hún var í fyrra. Einungis munar tveimur bílum að meðaltali á dag það sem af er ári. Þrír stærstu umferðarmánuðirnir eru framundan.
Það lítur út fyrir að meðalumferðin á dag árið 2012 verði um 550 bílar (ÁDU). Það þýðir að reikna má með að rúmlega 200 þúsund ökutæki fari um göngin í ár og um 520 þúsund manns verði þróun umferðar með svipuðum hætti og árið 2011.
Þróun umferðar má sjá á meðfylgjandi línuriti.
Meðalumferð í hverjum mánuði má svo sjá á stöplaritinu. Umferðin í janúar var tæpum 7% minni nú í ár miðað við árið 2011 en í maí á þessu ári var umferðin tæpum 11% meiri en fyrir ári síðan.
Eins og meðfylgjandi stöplarit ber með sér eru þrír stærstu umferðarmánuðir ársins framundan, í Héðinsfirði, og því verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.