Fréttir
  • Fánaborg Vegagerðar

Umsóknir um styrki til rannsóknarverkefna 2010

Umsóknarfrestur fyrir árið 2010 er til 3. febrúar.

7.1.2010

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2010.

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.

Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2010. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikdagsins 3. febrúar 2010. Eyðublöðin má nálgast hér.