Ný vegrið á brýr yfir Elliðaár og Reykjanesbraut
Vegriðsátak hófst árið 2019
Unnið er að endurnýjun vegriða á brúm yfir Elliðaár og á Reykjanesbraut. Verklok eru áætluð í september. Framkvæmdir þessar eru hluti af vegriðsátaki Vegagerðarinnar sem hófst árið 2019 til að auka umferðaröryggi.
Vegriðin
sem fyrir voru eru 15-20 ára gömul en stóðust ekki þá staðla sem miðað er við í
brúarvegriðum í dag. Nýju vegriðin eru hönnuð fyrir þann umferðarhraða sem er á
veginum og eru sterkari og með öðruvísi útlit.
Verkefni
þetta er eitt af nokkrum vegriðsverkefnum sem ákveðið var að vinna í
ofangreindu vegriðsátaki. Þegar er búið að skipta um vegrið á brúm yfir
Kaldakvísl og Leirvogsá á Hringvegi (1) í Mosfellsbæ, en það var gert árið
2020, og á brúm á Hafnarfjarðarvegi yfir Kársnesbraut og Nýbýlaveg árið 2021.
Einnig á að setja að setja upp ný vegrið á Borgarfjarðarbrú haustið
2022 og á brýrnar yfir Hafnarfjarðarveg við Hamraborg og á Digranesvegi í
Kópavogi haustið 2022. Þá verður skipt um vegrið á Glerá á Akureyri eystri-kant
á þessu ári. Samtals eru þetta 14 verkefni í vegriðsskiptum.
Á
brúm fyrir neðan Ártúnsbrekku var hægt að nota fyrirliggjandi festingar fyrir
vegriðsstoðirnar. Verktakinn setur saman einingar á athafnasvæði yfir daginn og
kemur svo með þær einingar og hífir á staðinn yfir nóttina.
Þegar er búið að skipta um vegrið á brúnum yfir Elliðaár og Reykjanesbraut á akreininni niður Ártúnsbrekku og svo verður skipt um á brúnum á akreininni upp Ártúnsbrekku núna í ágúst.
Vegriðið
er hannað að VBV verkfræðistofu og smíðað hjá Vik Örsta í Noregi.
Samtals
eru þetta 4 brýr fyrir neðan Ártúnsbrekku og eru yfir Elliðaár og
Reykjanesbraut.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
- Niðurtekt brúarvegriðs 495 m
- Niðurtekt bitavegriðs utan við brýr 154 m
- Uppsetning brúarvegriðs á steyptan kantbita 495 m
- Bitavegrið
utan við brú 480 m
Aðalverktakinn
við verkið er D.Ing-Verk ehf. og undirverktaki er Rekverk.
Eftirlit
með verkinu er í höndum VBV verkfræðistofa og Vegagerðin er með verkefnastjórn
og umsjón.
Þessi grein birtist í 5. tbl. Framkvæmdafrétta 2022. Rafræna útgáfu má finna hér. Áskrift að Framkvæmdafréttum er án endurgjalds og hægt er að skrá sig fyrir áskrift með því að senda póst á sogi@vegagerdin.is.