Mjög mikill samdráttur umferðar í maí á Hringveginum
Umferðin dróst saman um ríflega 10 prósent
Umferðin á Hringveginum í maí dróst saman um ríflega 10 prósent sem er gríðarlegur samdráttur. Enn meiri samdráttur er frá áramótum en umferðin fyrstu fimm mánuði ársins er 15,5 prósentum minni en í sömu mánuðum í fyrra og hefur aldrei áður mælst jafn mikill samdráttur á þessum árstíma. Samdrátturinn er mestur á Austurlandi og á ferðamannaleiðum en á Mýrdalssandi dróst umferðin saman um nærri 70 prósent í maí.
Milli
mánaða 2019 og 2020
Umferðin,
yfir 16 lykilteljara á Hringvegi, dróst saman um 10,3% í maí sl. miðað við sama
mánuð á síðasta ári. Leita þarf aftur til ársins 2016 til að finna minni
umferð í maí.
Umferðin dregst saman á öllum landssvæðum en mest á Austurlandi eða um tæp 40% en minnst á talningarstöðum á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 3%.
Af einstaka stöðum er mestur samdráttur á Mýrdalssandi eða tæplega 69% en minnstur um mælisnið á Hringvegi við Úlfarsfell eða 2%.

Frá
áramótum
Nú hefur
umferðin á Hringvegi, í umræddum mælisniðum, dregist saman um 15,5% frá
áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Aldrei áður hefur viðlíka samdráttur
mælst frá því að Vegagerðin hóf að birta þessa samantekt. Þetta er
tæplega tvöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst, miðað við árstíma.
Mest hefur umferð dregist saman á Austurlandi eða um tæp 40% en minnst við höfuðborgarsvæðið eða um rúmlega 8%.
Umferð
eftir vikudögum
Eins og
geta má nærri hefur umferð dregist saman í öllum vikudögum en hlutfallslega
mest á sunnudögum eða um tæp 24% en minnst á þriðjudögum eða um rúmlega 13%
Horfur út
árið 2020
Hegði
umferðin sér líkt og í venjubundnu ári, milli mánuða, gæti hún dregist saman um 15
-20% nú í ár, á Hringvegi. En mikil óvissa er í þessari spá þar sem þrír
helstu sumarmánuðirnir eru framundan, þar sem gjarnan er mest keyrt á Hringvegi.
Ef sumarið verður mun meira ferðasumar en venjulega þá gæti samdráttur orðið
minni, en það á eftir að koma í ljós og því afar fróðlegt að fylgjast með
framhaldinu.