Fréttir
  • Tölvuteikning af nýrri Ölfusárbrú.

Mikill erlendur áhugi á smíði Ölfusárbrúar

Fimm sýna áhuga, þarf að 3 erlendir aðilar

18.4.2023

Fimm vilja taka þátt í samkeppnisútboði Vegagerðarinnar vegna byggingar nýrra brúar yfir Ölfusá. Um er að ræða fimm verktaka, þrjá erlenda, íslenskan í samvinnu við erlendan verktaka og einn íslenskan. Þetta er upphaf útboðsferlisins og í kjölfarið fer fram hæfismat og þeim sem metnir eru hæfir verður boðin þátttaka. Vonast er til að samningar náist á þessu ári.

Eftirtöld fyrirtæki sóttu um þátttöku í útboðinu:

  • Hochtief Infrastructure GmbH, Essen, Þýskalandi
  • IKI Infrastructure Systems Co., Ltd, Tokyo, Japan
  • Ístak hf. - Per Aarsleff A/S - Freyssinet Int., fyrir hönd óstofnaðs félags, Reykjavík
  • Puentes y Calzada Infraestructuras, S.L.U., Spáni
  • ÞG verktakar ehf., Reykjavík
„Ég er mjög spennt," sagði Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar þegar þetta varð ljóst í dag. "Við erum hér með tvö öflug, íslensk verktakafyrirtæki, og annað þeirra er með erlenda samstarfsaðila, og svo erum við einnig með þrjá erlenda verktaka sem eru gríðarlega áhugaverðir og við verðum að skoða nánar. En það að við höfum fengið svona marga áhugasama þátttakendur í þessu samkeppnisútboði er mjög gott.“ 

Vegagerðin óskaði í byrjun mars á þessu ári eftir þátttakendum í samkeppnisútboð vegna byggingar nýrrar brúar á Ölfusá ásamt aðliggjandi vegum, vegamótum, brúm og undirgöngum. Um er að ræða samkeppnisútboð á grundvelli laga um opinber innkaup þar sem beitt verður hæfismiðuðu vali og þeim fyrirtækjum boðið til þátttöku sem metin verða hæf á grundvelli útboðsauglýsingar. Stefnt er á að framkvæmdum við byggingu Ölfusárbrúar ljúki árið 2026. 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. 

Verkið snýst um færslu Hringvegar (1) út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Meðal helstu verkþátta eru nýbygging 3,7 km Hringvegar, bygging nýrrar 330 m langrar stagbrúar á Ölfusá og um 1 km af öðrum tveggja akreina vegum. Gera þarf ný vegamót við Hringveg austan Selfoss, undirgöng undir Hringveg fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn ásamt undirgöngum fyrir bíla og gangandi. Einnig er gert ráð fyrir lögnum veitufyrirtækja. 

Markmiðið með framkvæmdunum er að auka umferðarrýmd, aðskilja akstursstefnur og bæta umferðaröryggi.  

Brúin verður 330 metra löng stagbrú með 60 metra háum turni á Efri Laugardælaeyju. Brúargólf verður 19 m breitt og er gert ráð fyrir 2+1 vegi með aðskildum aksturstefnum ásamt göngu- og hjólaleið. Einnig er gert ráð fyrir göngu- og hjólaleið undir brúna á báðum árbökkum.  

Gert er ráð fyrir steyptum endastöplum, brúargólfi með stálbitum og steyptu gólfi og turni úr stáli. Við forhönnun brúarinnar var miðað við aðstæður á svæðinu þar sem búast má við bæði jarðskjálftum og flóðum. Í brúnni er gert ráð fyrir jarðskjálftaeinangrun og forspenntum, bergfestum í undirstöðum turnsins. 

Helsta breytingin sem verður við þessa framkvæmd er að Hringvegur (1) styttist um 1,2 km og ferðatími styttist að lágmarki um fjórar til fimm mínútur. Einnig mun greiðast úr þeim umferðarteppum sem oft hafa skapast við gömlu Ölfusárbrúna. 

Framkvæmdin fer um tvö sveitarfélög, Flóahrepp og sveitarfélagið Árborg. Vegagerðin hefur sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélaganna beggja. 

Áætluð umferð um brúna við opnun er um fjögur til fimm þúsund ökutæki á sólarhring. Þá verður umferð þyngri ökutækja ekki leyfð á gömlu brúnni þegar sú nýja hefur verið tekin í notkun.