Fréttir
  • Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 16. nóvember um hjólastíga. Þar verður rætt um þróun hjólastíga undanfarin ár, hver staðan er í dag og hver er framtíðin.

Hjólað á eigin vegum

Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar um hjólastíga

15.11.2021

Hjólreiðar njóta sífellt meiri vinsælda á Íslandi sem frístundagaman en ekki síður sem samgöngumáti.

Um allan heim keppast stjórnvöld við að fjárfesta í grænni og heilsusamlegri ferðamátum. Svo er einnig hér á landi og endurspeglast það til dæmis í samgöngusáttmála milli ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ákveðið var að fjárfesta af krafti í innviðum fjölbreyttra samgöngumáta og auka þannig valfrelsi íbúa. Einnig er hröð þróun á landsbyggðinni þar sem hugað er að hjólainnviðum í sífellt meiri mæli. Áberandi eru hjólastígar sem lagðir eru milli þéttbýlisstaða sem njóta aukinna vinsælda bæði meðal íbúa og ferðafólks.

Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 16. nóvember um hjólastíga. Þar verður rætt um þróun hjólastíga undanfarin ár, hver staðan er í dag og hver er framtíðin.

Hvar: Í húsnæði Vegagerðarinnar að Suðurhrauni 3 í Garðabæ.

Hvenær: 16. nóvember frá klukkan 9 til 10.15.

Fyrir hverja: Áhugafólk um hjól og hjólastíga getur skráð sig á morgunverðarfundinn hér: Skráningarhlekkur. (Fjöldatakmörkun er 50 manns. Grímuskylda er á viðburðinum.)

Upptöku af fundinum má finna hér:  https://livestream.com/accounts/15827392/events/9925654

Fyrirspurnir má senda í gegnum vefsíðuna slido.com með kóðanum #hjolastigar

Dagskrá:

Vegagerðin og hjóla- og göngustígar. Fyrirkomulag og helstu verkefni utan höfuðborgarsvæðis. Valtýr Þórisson forstöðumaður áætlanadeildar Vegagerðarinnar.

Framkvæmdir á stofnhjólaleiðum á höfuðborgarsvæðinu. Katrín Halldórsdóttir sérfræðingur á Höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar

Sjónarmið hjólandi – möguleikar hjólreiða á Íslandi. Árni Davíðsson formaður LMH, Landssamtaka hjólreiðamanna.

Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar. Kristinn Jón Eysteinsson verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg.