Fréttir
  • Sigurður Ingi, innviðaráðherra, tók fyrstu skóflustungu vegna framkvæmda við Arnarnesveg.
  • Sigurður Ingi Jóhannsson,  innviðaráðherra.
  • Guðmundur Ólafsson, Höskuldur Tryggvason, Dofri Eysteinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Bergþóra Þorkelsdóttir, Davíð Þorláksson, Andrés Sigurðsson og Ari Sigurðsson.

Framkvæmdir vegna Arnarnesvegar að hefjast

Verklok áætluð haustið 2026

23.8.2023

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustungu á gröfu að framkvæmdum vegna Arnarnesvegar fyrr í dag. Um er að ræða þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Áætluð verklok eru haustið 2026.

„Það er ánægjulegt að framkvæmdir á Arnarnesvegi séu hafnar því þessi nýja leið mun létta á umferð við Vatnsendaveg og stytta ferðatíma fólks. Auk þess munu undirgöng, brýr og göngu- og hjólastígar verða mikil samgöngubót og stórt umferðaröryggismál fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur," sagði Sigurður Ingi, þegar hann hafði tekið fyrstu skóflustunguna.

Í verkinu felst lagning 1,9 km vegkafla frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut, tvö hringtorg, tvenn undirgöng, tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og samtals 2,5 km göngu- og hjólastígar. Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi, stytta ferðatíma og létta á umferð við Vatnsendaveg.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna ohf., Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk. Eftirlit er í höndum VSB. 

Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.