Fréttir
  • Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2016

Auglýst eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2017

umsóknarfrestur til 1. febrúar

5.1.2017

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum ætti það að vera 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.

Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2017. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikudagsins 1. febrúar 2017. Eyðublöðin og nánari upplýsingar má nálgast hér.

Hluti rannsóknarverkefnanna er kynntur árlega á ráðstefnu, nú síðast í Hörpu í lok október 2016, myndin er tekin við það tækifæri.