• Yfir 260 manns sóttu rannsóknaráðstefnuna sem haldin var á Hilton hóteli.
  • Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar setti ráðstefnuna.
  • Páll Valdimar Kolka Jónsson var fundarstjóri líkt og á síðasta ári.
  • Dr. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, hélt erindið Eldvirkni á Íslandi og hugsanleg áhrif á innviði.
  • Björk Úlfarsdóttir, umhverfis-, gæða- og nýsköpunarstjóri hjá Colas Íslandi.
  • Darri Kristmundsson hjá Vatnaskilum hélt erindið Vindaðstæður við brýr – hermun til stuðnings hönnunarviðmiðum.
  • Ólafur H. Wallevik frá Háskólanum í Reykjavík hélt erindi um kosti hástyrkleikasteypu á brýr.
  • Benedikt Ó. Steingrímsson hjá Mannviti.
  • Majid Eskafi hjá EFLU hélt erindið: Kolefnisfótsporsgreining á brimvarnargörðum og sjóvörnum.
  • Davíð Guðbergsson hjá VSÓ ráðgjöf hélt erindið Áhrif á öryggi virkra ferðamáta vegna algrænna umferðarljósa.
  • Berglind Hallgrímsdóttir hjá EFLU hélt erindið Umferðaröryggisaðgerðir og áhrif á leiðarval.
  • Thijs Kreukels hjá VSB verkfræðistofu hélt erindið Leiðbeiningar um hönnun gatna í þéttbýli.
  • Sæunn Gísladóttir hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri hélt erindið Áhrif fjarvinnu á vegakerfið.
  • Þorsteinn Sæmundsson, hélt erindi fyrir hönd Jöklahópi Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
  • Þorsteinn Sæmundsson, Halldór Geirsson og Hafdís Jónsdóttir stóðu að erindinu Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga.
  • Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurvaktinni hélt erindið Mælaborð úrkomuvöktunar í Almenningum.
  • Rannveig Thoroddsen hjá Náttúrufræðistofnun Íslands hélt erindið Opna fjallvegir hlið fyrir landnám innfluttra plöntutegunda á hálendi Íslands?
  • Ásta Ósk Hlöðversdóttir hjá VSB verkfræðistofu flutti erindið Örmengunarefni í ofanvatni af vegum.
  • Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsókna hjá Vegagerðinni, átti veg og vanda að skipulagningu ráðstefnunnar.
  • Yfir 260 manns sóttu rannsóknaráðstefnuna sem haldin var á Hilton hóteli.
  • Fluttir voru 16 fyrirlestrar og 13 veggspjöld voru til kynningar.
  • Yfir 260 manns sóttu rannsóknaráðstefnuna sem haldin var á Hilton hóteli.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2023

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í 22. sinn föstudaginn 27. október og fór fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut. Ráðstefnunni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. 

Á ráðstefnunni kenndi margra grasa. Haldnir voru 16 fyrirlestrar um rannsóknarverkefni og kynnt 13 veggspjöld. Dr. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur og prófessor í jarðfræði við Háskóla Íslands, hóf ráðstefnuna með erindi sem bar heitið „Eldvirkni á Íslandi og hugsanleg áhrif á innviði“.  

Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki einvörðungu er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag. 

Ráðstefnan var afar vel sótt en hátt í 270 manns voru skráðir. Um breiðan hóp er að ræða sem samanstendur af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsmönnum ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktökum og almennu áhugafólki um samgöngur og rannsóknir. 

Ráðstefnustjóri var Páll Valdimar Kolka. 

Heiti og flytjendur erindanna
SetningBergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar 

Eldvirkni á Íslandi og hugsanleg áhrif á innviði, Dr. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands - Ágrip

Kolefnishlutlaus bindiefniBjörk Úlfarsdóttir, Colas Ísland - Ágrip

Vindaðstæður við brýr - hermun til stuðnings hönnunarviðmiðum, Darri Kristmundsson, Vatnaskil - Ágrip

Sigmælingar með LiDAR skanna á þyrildi, Sólveig Kristín Sigurðardóttir, Verkís - Ágrip

Kostir hástyrkleikasteypu á brýr, Ólafur H. Wallevik, Háskólinn í Reykjavík

Ástandsskoðun sprautusteypu í jarðgöngum með tilliti til þykktar og væntanlegs líftíma, Benedikt Ó. Steingrímsson og Guðbjartur Jón Einarsson, Mannvit - Ágrip

Kolefnisfótsporsgreining á brimvarnargörðum og sjóvörnum, Majid Eskafi, EFLA - Ágrip

Áhrif á öryggi virkra ferðamáta vegna algrænna umferðarljósa, Davíð Guðbergsson, VSÓ ráðgjöf - Ágrip

Umferðaröryggisaðgerðir og áhrif á leiðarval, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA - Ágrip

Leiðbeiningar um hönnun gatna í þéttbýli, Thijs Kreukels, VSB verkfræðistofa - Ágrip

Áhrif fjarvinnu á vegakerfið, Sæunn Gísladóttir, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri - Ágrip

Grímsvötn: vatnsgeymir, jökulhlaup, upphaf og rennsli, Finnur Pálsson, Jöklahópur Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands - Ágrip

Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga, Þorsteinn Sæmundsson, Halldór Geirsson og Hafdís Jónsdóttir, Háskóli Íslands og Vegagerðin - Ágrip

Mælaborð úrkomuvöktunar í Almenningum, Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktin - Ágrip

Opna fjallvegir hlið fyrir landnám innfluttra plöntutegunda á hálendi Íslands, Rannveig Thoroddsen, Náttúrufræðistofnun Íslands - Ágrip

Örmengunarefni í ofanvatni af vegum, Ásta Ósk Hlöðversdóttir, VSB verkfræðistofa - Ágrip

Veggspjöld til sýnis á 22. Rannsóknaráðstefnu.

Veggspjöld á 22. Rannsóknaráðstefnu                                                                                                                                    
Afkoma og hreyfing Breiðamerkurjökuls og afrennsli leysingavatns til Jökulsárlóns á BreiðamerkursandiFinnur Pálsson, Eyjólfur Magnússon, Sveinbjörn Steinþórsson og Joaquín M. C. Belart, Jarðvísindastofnun Háskólans og Landmælingar Íslands.
Ákvörðun á stífni íslenskra malbiksblandna, Tinna Húnbjörg og Sigurður Erlingsson, Háskóli Íslands og Vegagerðin
Forsteyptar brúareiningar - Brú yfir Laxá í Kjós, Breki Þórðarson, Helgi S. Ólafsson og Ólafur Sveinn Haraldsson, Háskólinn í Reykjavík og Vegagerðin.
Forsteyptir landstöplar í nýrri brú yfir Öxará í Bárðardal, Franz Sigurjónsson, Helgi S. Ólafsson, Ólafur Sveinn Haraldsson, Ching-Yi Tsai og Bjarni Bessason, EFLA, Vegagerðin og Háskóli Íslands.
Future proglacial lake evolution and outburst flood hazard in Iceland, Greta Wells, Þorsteinn Sæmundsson, Snævarr Guðmundsson og Eyjólfur Magnússon, Jarðvísindastofnun Háskólans.
Nýtt nærsviðslíkan af stórskjálftahreyfingum út frá gerviskjálftaritum með aðferðum Bayesískrar tölfræði, Milad Kowsari, Frenaz Bayat, Bjarni Bessason, Jónas Þór Snæbjörnsson og Benedikt Halldórsson, Háskóli Íslands.
Ólínuleg greining á steyptum stoðveggjum með einingaraðferðinni, Stefán Grímur Sigurðsson, Ching-Yi Tsai, Dórótea Høeg Sigurðardóttir og Bjarni Bessason, Háskóli Íslands.
Ólínuleg töluleg greining á brotmörkum steinsteyptrar brúar yfir Steinavötn, Þorkell Jón Tryggvason, Dórótea Høeg Sigurðardóttir, Ching-Yi Tsai og Bjarni Bessason, Háskóli Íslands.
Strandlínubreytingar á Suðausturlandi frá 1903-2021Ingibjörg Jónsdóttir og Sigurður Sigurðarson, Háskóli Íslands og Vegagerðin
Vatnafræðileg svörun nokkurra íslenskra vatnasviða við áætluðum loftlagsbreytingum á 21. öld,

Philippe Crochet, sjálfstætt starfandi ráðgjafi.

Þorskafjörður - Uppsetning á aflögunarmæli, Eggert Eiríkur Guðmundsson og Þorbjörg Sævarsdóttir, Vista verkfræðistofa og Verkbjörg.
Skoðun á undirstöðum brúa með fjölgeisla dýptarmæli, Gunnar Orri Gröndal, Vegagerðin.
Öldumælingar við Ísland, Gunnar Orri Gröndal, Vegagerðin