Opnun tilboða

Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit: Kinnarstaðir – Þórisstaðir, eftirlit og ráðgjöf (EES)

19.10.2021

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla ásamt byggingu 260 m langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegsvæði sem tengist Vestfjarðavegi í báða enda. Brúin er steypt eftirspennt bitabrú í sex höfum.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. júní 2024

Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests: 

Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
Mannvit hf., Kópavogi
Verkís hf., Reykjavík

 Föstudaginn 22. október  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.