Opnun tilboða

Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá, eftirlit (EES)

17.8.2021

Vegagerðin bauð út eftirít með byggingu nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd. Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt og eftirspennt. Einnig skal byggja nýjar tengingar og heimreiðar, samtals um 4,5 km að lengd.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 1. nóvember 2023.

Tilboðum bar að skila fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. ágúst  2021. Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests:   

Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
Mannvit hf., Kópavogi
Verkís hf., Reykjavík

Þriðjudaginn 24. ágúst 2021 verður tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.