Þrengslavegur (39), Lambafell – Litla Sandfell, styrking
Þann 21. febrúar 2023 voru opnuð tilboð í endurmótun, styrkingu og malbikun á 5,4 km kafla á Þrengslavegi (39-01), frá afleggjara að Lambafells námu að afleggjara að Litla-Sandfelli.Verkið felst að stærstum hluta til í fræsingu núverandi vegar, lítilsháttar breikkun, jöfnun og útlögn malbiks. Helstu magntölur eru.
- Skeringar 1.546 m3
- Styrktarlag 1.980 m3
- Burðarlag 0/22 7.153 m3
- Fláafleygar 7.854 m3
- Malbik 60 mm 41.999 m2
- Gróffræsun slitlags 35.807 m2
- Vegrifflur 5.400 m
- Frágangur fláa 68.042 m2
- Malaraxlir 1.077 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Loftorka Reykjavík | 363.000.000 | 113% | 50.052 |
Malbikunarstöðin Höfði | 349.170.550 | 109% | 36.222 |
Áætlaður verktakakostnaður | 321.522.056 | 100% | 8.574 |
Óskatak ehf | 315.278.180 | 98% | 2.330 |
Malbikstöðin | 312.948.200 | 97% | 0 |