Opnun tilboða

Sauðárkrókur – upptekt þvergarðs og lenging Norðurgarðs 2021

11.8.2021

Opnun tilboða 10. ágúst 2021. Skagafjarðarhafnir óskaði eftir tilboðum í að lengja  Norðurgarð Sauðárkrókshafnar um 30 metra og taka upp þvergarð innan við garðinn og nota efni úr honum í grjótvörn og kjarnafyllingu lengingarinnar.

Helstu magntölur:

·         Útlögn á grjóti úr námu, um 3.700 m3

·         Upptekt, endurröðun og losun efnis á losunarsvæði, um 10.000 m3

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. mars 2022.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Norðurtak ehf. Akureyri 71.517.830 142,1 1.832
Víðimelsbræður ehf., Varmahlíð 69.685.750 138,5 0
Áætlaður verktakakostnaður 50.330.250 100,0 -19.356