Opnun tilboða
Reykjavegur (355), Biskupstungnabraut – Laugarvatnsvegur
Tilboð opnuð 8. janúar 2019. Breikkun og endurgerð Reykjavegar (355) í Bláskógarbyggð ásamt byggingu nýrrar 20 m langrar eftirspenntrar brúar yfir Fullsæl. Lengd kaflans auk tengivega er 8 km. Innifalið í verkinu er einnig efnisvinnsla í námum, ræsalögn, girðingarvinna og útlögn klæðingar.
Helstu magntölur í vegagerð eru:
- - Skeringar 145.000 m3
- Þar af bergskeringar 63.400 m3
- - Fyllingar 57.400 m3
- - Fláafleygar 21.000 m3
- - Lenging og endurlögn ræsa 443 m
- - Styrktarlag 40.300 m3
- - Burðarlag 24.600 m3
- - Tvöföld klæðing 68.000 m2
Helstu magntölur í brúargerð eru:
- - Steypustyrktarjárn 62.330 kg
- - Mótafletir 1.183 m2
- - Steypa 555 m3
- - Kaplar 12 x 16 mm 4.090 kg
Áfanga 1 í verkinu (3,5 km fullgerður vegur ) skal ljúka fyrir 1. september 2019. Verkinu skal vera að fullu lokið 1. september 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Magnús Jónsson ehf., Selfossi | 998,410,100 | 165.0 | 462,999 |
Mjölnir, vörubifreiðastjórafélag, Selfossi | 679,335,000 | 112.3 | 143,924 |
Suðurverk hf., Kópavogi | 623,067,000 | 103.0 | 87,656 |
Áætlaður verktakakostnaður | 605,000,000 | 100.0 | 69,589 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 577,750,000 | 95.5 | 42,339 |
Þjótandi ehf., Hellu | 575,222,294 | 95.1 | 39,811 |
Borgarvirki ehf. og GT verktakar ehf., Hafnarfirði | 535,410,950 | 88.5 | 0 |