Opnun tilboða

Reykjanesbraut (41), gatnamót við Vífilsstaðaveg. Eftirlit

29.4.2008

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með gerð mislægra gatanamóta á Reykjanesbraut (41) við Vífilsstaðaveg.

Verkið felst í gerð mislægra gatnamóta, á mótum Reykjanesbrautar og Vífilsstaðavegar. Breyta skal legu núverandi Vífilsstaðavegar og gera tvö hringtorg, sitt hvoru megin við Reykjanesbraut og tengja hringtorgin við Reykjanesbraut með gerð fjögurra af/fráreina. Auk þess skal gera stálbogagöng undir Vífilsstaðaveg vestan gatnamótanna. Einnig skal leggja gangstíga, steypa stoðveggi og tröppur, leggja nýjar lagnir og breyta eldri lögnum ásamt nauðsynlegri landmótun til að ljúka verkinu.

Gatnamótin skulu vera tilbúin til notkunar 1. nóvember 2008. Áætlað er að verkinu öllu verði að fullu lokið 10. júlí 2009.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Opnun tilboða 29. apríl 2008.

Bjóðandi
Línuhönnun, verkfræðistofa, Reykjavík
Almenna verkfræðistofan, Reykjavík
Fjölhönnun ehf., verkfræðistofa, Reykjavík

Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 6. maí 2008 kl.14:15, þar sem lesnar verðar upp einkunnir bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð opnuð.