Laugarvatnsvegur (37) Biskupstungnabraut - Þóroddsstaðir
Tilboð opnuð 17. september 2019. Endurbætur á 2,9 km kafla á Laugarvatnsvegi (37-01) frá Biskupstungnabraut að Þóroddsstöðum. Veturinn 2019-2020 skal vinna við efnisútvegun og breikkun vegarins. Eftir 14. apríl 2020 verður núverandi slitlag fræst upp, vegurinn styrktur og lögð út klæðing.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 7.120 m3
- Ræsalögn 48 m
- Endafrágangur ræsa 4 stk.
- Styrktarlag 0/63 6.370 m3
- Burðarlag 0/22 3.825 m3
- Tvöföld klæðing 23.100 m2
- Frágangur fláa 27.165 m2
Verklok eru 15. júlí 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 98.800.000 | 100,0 | 19.238 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 94.650.000 | 95,8 | 15.088 |
Vörubifreiðastjórafélagið Mjölnir, Selfossi | 90.978.450 | 92,1 | 11.416 |
Bakkavélar ehf., Selfossi | 87.599.095 | 88,7 | 8.037 |
Verk og Tæki, Selfossi | 87.599.095 | 88,7 | 8.037 |
Aðalleið ehf., Hveragerði | 79.562.350 | 80,5 | 0 |