Klofningsvegur (590), Vestfjarðavegur – Kýrunnarstaðir
Opnun tilboða 13. júní 2023. Endurbygging á um 8,5 km kafla á Klofningsvegi í Dalabyggð. Um er að ræða endurbætur á núverandi vegi ásamt vegtenginga og frágangs.
Magntölur fyrir verkefnið:
- Bergskering 20.000 m3
- Fyllingar og fláafleygar 56.700 m3
- Ræsalögn 560 m
- Styrktarlag 16.800 m3
- Burðarlag 9.100 m3
- Tvöföld klæðing 55.900 m2
- Vegrið 480 m
- Reiðleið við hlið vegar 6.000 m2
- Frágangur fláa 105.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2024.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Stórverk ehf., Þorlákshöfn | 363.290.000 | 114,6 | 28.710 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 348.631.000 | 109,9 | 14.051 |
Þróttur ehf., Akranesi | 336.789.784 | 106,2 | 2.210 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 334.579.700 | 105,5 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 317.091.406 | 100,0 | -17.488 |