Opnun tilboða

Hringvegur (1) um Hornafjörð - Eftirlit og ráðgjöf

6.9.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegur (1) um Hornafjörð.  Verkið felur í sér styttingu Hringvegarins um 12 km með gerð 19 km langs vegar er kemur til að liggja yfir norðanverðan Hornafjörð. Innifalið í verkinu er smíði fjögurra brúa.   

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í desember 2025.

Eftirtaldir lögðu fram tilboð og voru metnir hæfir:

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Efla hf 183.827.738 127,7 54.633
Áætlaður verktakakostnaður 144.000.000 100,0 14.805
Mannvit hf 140.562.000 97,6 11.367
Verkís ehf 129.194.745 89,7 0