Opnun tilboða

Hringvegur (1) um Kjalarnes 2. áfangi, Vallá - Hvalfjörður. Eftirlit og ráðgjöf (EES)

23.4.2021

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með breikkun Hringvegar (1) um Kjalarnes í 2+1 veg frá Vallá að Hvalfirði. Um er að ræða um 5,5 km langan vegkafla með hringtorgum við Móa og Dalsmynni, nýjum undirgöngum við Grundarhverfi og Arnarhamar, lengingu á undirgöngum við Vallá, nýtt stálplöturæsi/brú yfir Ártúnsá við Bakkaveg, lengingu á stálplöturæsi/brú yfir Ártúnsá við Hringveg auk hliðarvega, stíga og veitukerfa. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Tilboðum bar að skila fyrir kl. 14:00 föstudaginn 23. apríl 2021. Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests: 
     Efla hf., Reykjavík
     Hnit, verkfræðistofa hf., Reykjavík
     Mannvit, Kópavogi

Miðvikudaginn 28. apríl 2021 verður tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.