Yfirlagnir á Vestursvæði 2023, klæðing
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Vestursvæði árið 2023.
Helstu magntölur eru:
Hjólfarafylling með klæðingu: 18.000 m2
Yfirlögn með einföldu lagi klæðingar, þjálbik: 380.000 m2
Yfirlögn með einföldu lagi klæðingar, bikþeyta: 20.000 m2
Yfirlögn með kílingu: 60.000 m2
Klæðing yfirsprautun: 18.000 m2
Flutningur steinefna: 100.000 m3 x km
Flutningur bindi- og viðloðunarefna 90.000 m3 x km
Verki skal að fullu lokið 1. september.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 14. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.