Auglýst útboð

Viðgerðir á malbikuðum slitlögum 2022-2024, höfuðborgarsvæði og Reykjanes

14.2.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á malbikuðum slitlögum á höfuðborgarsvæði og Reykjanesi 2022-2024.

Verktími er allt árið frá 01.04.2022 til 01.04.2024.  

Helstu magntölur eru:        

            Viðgerð með íkasti:                     2.000 m2           

            Malbikssögun:                                     50 m

            Viðgerð með fræsun:                   2.950 m2

 Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 14. febrúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. mars 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.