Auglýst útboð

Vetrarþjónusta 2021-2024, Barðastrandarsýslur (EES)

30.5.2021

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, á tilteknum leiðum í  Barðastrandarsýslum.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn. 

Heildarlengd vegakafla er 153 km.

Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 42.000 km. á ári.

Verklok eru í apríl 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 30.  maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.