Auglýst útboð

Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit: Kinnarstaðir – Þórisstaðir, eftirlit og ráðgjöf (EES)

12.9.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 2,7 km kafla ásamt byggingu 260 m langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegsvæði sem tengist Vestfjarðarvegi í báða enda. Brúin er steypt eftirspennt bitabrú í sex höfum.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. júní 2024

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 12.  september 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. október 2021. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Föstudaginn 22. október  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.