Upphéraðsvegur (931) um Ásklif
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið: Upphéraðsvegur (931) um Ásklif. Verkið felst í endurbyggingu, Upphéraðsvegar á um 3,7 km kafla, 931-02 Ás-Hof.
Helstu magntölur eru:
- - Bergskeringar 14.000 m3
- - Fyllingar 27.900 m3
- - Fláafleygar 17.800 m3
- - Ræsalögn 40 m
- - Styrktarlag 17.400 m3
- - Burðarlag 3.980 m3
- - Klæðing 23.500 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 26. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. ágúst 2021.Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.