Snæfellsnesvegur (54): Ketilsstaðir – Gunnarsstaðir (EES)
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Snæfellsnesvegar á um 5,4 km kafla. Innifalið í verkinu er bygging 43 m langrar brúar á Skraumu og 52 m langrar brúar á Dunká.
Helstu magntölur við vegagerð eru:
- Bergskering
í vegstæði 10.100 m3
- Bergskering í námu 8.800 m3
- Fyllingar 49.000 m3
- Ónothæfu efni jafnað á losunarstað 5.800 m3
- Fláafleygar 17.200 m3
- Ræsalögn 225 m
- Styrktarlag 26.600 m3
- Burðarlag 9.700 m3
- Klæðing 44.700 m2
- Vegrið 524 m
Helstu magntölur í brúargerð fyrir Skraumu eru:
- Vegrið 114 m
- Gröftur 400 m3
- Bergskering 150 m3
- Bergboltar 15 stk.
- Fylling 1300 m3
- Mótafletir 650 m2
- Slakbent járnalögn 56.000 kg
- Steypa 340 kg
- Forsteyptar einingar 38 stk.
- Stálvirki 33,4 tonn
Helstu magntölur í brúargerð fyrir Dunká eru:
- Vegrið 136m
- Gröftur 1.314 m3
- Bergskering 240 m3
- Bergboltar 18 stk.
- Fylling 2.000 m3
- Mótafletir 1.310 m2
- Slakbent járnalögn 110.000 kg
- Spennt járnalögn 14.840 kg
- Steypa 755 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. júní 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 7. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. ágúst 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.