Auglýst útboð

Reykjanesbraut (41), Krýsuvíkurvegur - Hvassahraun

5.3.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns  ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Einnig er inni í verkinu bygging fimm brúarmannvirkja og einna undirganga úr stáli. Verk þetta er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. 

Helstu magntölur eru:

Vegagerð, 

- Bergskeringar 192.000 m3
- Fyllingar 131.100 m3
- Fláafleygar 38.400 m3
- Ofanvatnsræsi, steypt 1.240 m
- Brunnar 15 stk.
- Niðurfallsbrunnar og ristar 30 stk.
- Hliðarniðurföll 47 stk.
- Styrktarlag 54.700 m3
- Burðarlag, óbundið 28.200 m3
- Malbik 242.300 m2
- Kantsteinn 1.200 m
- Vegrið 11.360 m
- Götulýsing, skurður 14.380 m
- Götulýsing, strengur, lagning 18.430 m
- Götulýsing, uppsetning ljósastaura 422 stk.
- Yfirborðsmerkingar, línur 35.100 m

Mannvirki:

- Fylling                                                   3.780 m3
- Stálplöturæsi 56 m
- Bergskeringar 10.130 m3
- Bergboltar 176 stk.
- Mótafletir 4.790 m2
- Járnalögn 233.300 kg
- Uppspennukaplar 13.680 kg
- Steypa 1.824 m3
- Vatnsvarnarlag 1.595 m2


 Veitufyrirtæki

- Gröftur                                                     5.600 m3
- Fylling (söndun) 2.800 m3
- Losun á klöpp í skurðum 4.500 m3
- Fráveitulögn, 600 mm 178 m
- Holræsabrunnur 3 stk.
- Vatnsveitulagnir 1.310 m
- Ídráttarrör 1.801 m
- Strengir 1.490 m
- Jarðvír 1.045 m
- Fjarskiptalangir 4.985 m
Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með sunnudeginum 5. mars 2023  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 5. apríl 2023. 

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.