Auglýst útboð

Hrútafjörður sjóvarnir, Reykir og Borgir 2022

14.3.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið „Hrútafjörður sjóvarnir, Reykir og Borgir 2022“.

Helstu verkþættir eru:

·         Útlögn grjóts og kjarna úr námu um 1.400 m3

·         Upptekt og endurröðun um 200 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  14. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. mars 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign