Auglýst útboð

Hríseyjarferja 2023-2025

28.10.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur Hríseyjarferju 2023-2025 - Sérleyfi fyrir Vegagerðina á ferjuleiðinni Hrísey – Árskógssandur - Hrísey, þ.e. að annast fólks- og vöruflutninga til og frá Hrísey. Bjóðandi skal nota ferjuna m/s Sævar sem er í eigu kaupanda og er til sýnis í samráði við kaupanda. Samningstími er 3 ár með möguleika á framlengingu allt að 2 sinnum, 1 ár í senn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 28. október 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 1. desember 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.