Auglýst útboð

Hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir á Vestursvæði og Norðursvæði 2023

12.3.2023

Vegagerðin býður hér með út hjólfarafyllingar, afréttingar og lagfæringar á öxlum með flotbiki (Micro surfacing) á vegum á Vestursvæði og Norðursvæði árið 2023.

Helstu magntölur eru:         

   Hjólfarafylling með flotbiki Vestursvæði            24.000 m2

   Hjólfarafylling með flotbiki Norðursvæði           36.400 m2

   Samtals                                                                 60.400 m2

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með 13. mars  2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign