Hafravatnsvegur (431) Nesjavallavegur - Úlfarsfellsvegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurmótun 4,2 km Hafravatnsvegar (431-01) frá Nesjavallavegi og langleiðina að Úlfarsfellsvegi.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 6.155 m3
- Fyllingar og fláafleygar 6.155 m3
- Styrktarlag 0/63 5.600 m3
- Burðarlag 0/22 5.155 m3
- Tvöföld klæðing 29.870 m2
- Vegrið 1.320 m
- Frágangur fláa 23.640 m2
Verklok eru 1. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 14. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign