Auglýst útboð

Dímonarvegur (250), Hringvegur – Auravegur

22.4.2024

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð og endurmótun Dímonarvegar (250). Um er að ræða endurmótun á um 3 km löngum vegarkafla frá Hringvegi og rétt norður fyrir vegamót við Auraveg, auk útlagningar burðarlags og klæðingar,  breytinga á vegamótum og gerð hjáreina/vasa.

Helstu magntölur eru:  

 - Skeringar                 3.400 m3

- Fyllingar                    2.400 m3

- Fláafleygar               1.000  m3

- Styrktarlag                7.500 m3

- Burðarlag                  3.600 m3

- Tvöföld klæðing     21.000 m2

- Frágangur fláa       21.000  m2

- Girðingar                       240  m

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2024

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 22. apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7.maí 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign