Auglýst útboð

Dalvíkurbyggð - sjóvarnir 2021

15.8.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  í byggingu sjóvarna við Sæból og Framnes norðan Dalvíkur. Um er að ræða 50 m framlengingu á sjóvörn við Sæból og 120 m nýja sjóvörn við Framnes.

Heildarmagn af flokkuðu grjóti og sprengdum kjarna um 2.000 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. janúar 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 16. ágúst 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. ágúst 2021. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.