Auglýst útboð

Dalvík, endurbygging Norðurgarðs 2024

22.4.2024

Hafnarstjórn Dalvíkur óskar eftir tilboðum í verkið "Dalvík, endurbygging Norðurgarðs 2024".

Helstu verkþættir:
• Brjóta og fjarlægja eldri kant, polla og þekju.
• Skera gat í eldra þil fyrir akkerisstög.
• Uppsetning stagbita og steypa tappa utan um eldri stagbita.
• Jarðvinna, fylling og þjöppun.
• Reka niður 61 tvöfalda stálþilsplötu af gerð GHZ 20-1 og ganga frá stagbitum og
stögum.
• Steypa um 81 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
• Steypa tvær undirstöður fyrir löndunarkrana.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. desember 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 22. apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. maí 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign