Auglýst útboð

Borgarfjörður eystri - sjóvarnir 2022

13.9.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið „Borgarfjörður eystri - sjóvarnir 2022“. Verkið felst í byggingu sjóvarna á tveimur stöðum á Borgarfirði, heildarlengd um 410 m.

Helstu magntölur eru:

            Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 7.100 m3.

            Upptekt og endurröðun grjóts um 1.000 m3.

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. maí 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 13. september 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. september 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.