Kynningargögn

Hringvegur (1-a3). Ný brú á Hverfisfljót í Skaftárhreppi

18.11.2020

Ný brú á HverfisfljótVegagerðin kynnir hér fyrirhugaðar framkvæmdir við nýja brú á Hringvegi (vegnúmer 1-a3) um Hverfisfljót í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Í tengslum við byggingu nýrrar brúar þarf að endurbyggja Hringveginn á kafla.

Fyrirhugað er að byggja nýja 74 m langa og tvíbreiða brú yfir Hverfisfljót á Hringvegi, vegnúmer 1, við hlið núverandi brúar, eða 20 m neðan hennar, auk vega sem tengja nýja brú núverandi vegakerfi. Nýr vegur og brú verða samtals um 2,2 m löng, þar af verður 1,1 km nýlögn og 1,1 km endurbygging núverandi vegar (sjá teikningar 1-4). Einnig verður byggður nýr áningarstaður við Hverfisfljót í stað núverandi áningarstaðar sem hverfur undir nýjan veg. Á þessum stað er fallegt útsýni í átt að Lómagnúp og Öræfajökli og því er nauðsynlegt að byggja nýjan, öruggan og stærri áningarstað.

Ný brú verður tengd núverandi vegakerfi með um 0,5 km löngum vegi vestan Hverfisfljóts og um 1,4 km löngum vegi austan Fljótsins. Kaflinn endar við nýja brú á Brunná sem verður tilbúin í nóvember 2020. Í framkvæmdinni felst einnig endurbygging Hringvegarins á 0,2 km kafla austan Brunnár. Nýir vegir eru því samtals um 2,1 km langir og fyrirhuguð framkvæmd (með nýrri brú) alls um 2,2 km löng (sjá teikningu 4).

Áætluð efnisþörf nýs vegar er um 60 þús. m3 og er efnistaka fyrirhuguð úr skeringum nýs vegsvæðis, núverandi vegum og fjórum námum.

Vegagerðin áætlar að vegur og brú verði byggð árið 2021 og hægt verði að taka mannvirkið í notkun haustið 2021.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi. Markmiðið er að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum. Með nýjum vegi, nýrri tvíbreiðri brú á Hverfisfljót og nýjum og stærri áningarstað, mun umferðaröryggi aukast til mikilla muna og umferð um svæðið verða greiðari en hún er nú.

Í samþykktri 5 ára samgönguáætlun 2020-2024 er gert ráð fyrir 500 milljónum til breikkunar brúa á hverju ári 2020-2024. Ný brú á Hverfisfljót fellur undir þann lið. Endur- og nýlagning vegarins fellur undir viðhald vega, þ.e. styrkingar og endurbætur.

Framkvæmdin er ekki matsskyld skv. 5. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum, en kanna þarf matsskyldu hennar, skv. 6. gr. sömu laga, 1. viðauka. Lið 10.09.

Framkvæmdum verður hagað þannig að neikvæð áhrif þeirra á umhverfið verði sem minnst. Samráð hefur verið haft við hagsmunaaðila og sveitarfélag við undirbúning framkvæmdarinnar. Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar.

Vegagerðin hefur sent kynningarskýrsluna til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu framkvæmdarinnar. Umsagnaraðilar hafa frest til 25. nóvember til að skila umsögn til Skipulagsstofnunar.