Kynningargögn

Þingskálavegur (268-01/02), Heiði - Bolholti

8.11.2023

teikning - Fyrirhuguð framkvæmd þingskálavegurVegagerðin kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir á um 7,4 km löngum kafla á Þingskálavegi (268-01/02) milli Heiðar og Bolholts á Rangárvöllum í Rangárþingi Ytra. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar.

Kanna þarf matsskyldu framkvæmdarinnar samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur á svæðinu, auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum í Rangárþingi Ytra. Vegurinn verður hærri og breiðari en núverandi vegur, með bundnu slitlagi og bættum sjónlengdum.

Ekki er um eiginlega styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi.

Ýtarlegri upplýsingar um framkvæmdina má finna í meðfylgjandi skýrslu og teikningum.

Kynningarskýrsla
Teikningar
Fylgiskjöl