Fréttir
  • Frá Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar árið 2022.
  • Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna.

Opnað fyrir umsóknir um rannsóknastyrki Vegagerðarinnar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2023

2.1.2023

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2023.

Frestur til að skila umsóknum rennur út á miðnætti föstudaginn 27. janúar 2023. 

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna. Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2023.

Umsóknir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir miðnætti föstudagskvöldið 27. janúar 2023. Nánari upplýsingar má nálgast hér á vef Vegagerðarinnar.

Fyrirspurnir má senda í tölvupósti til Ólafs Sveins Haraldssonar, forstöðumanns rannsóknadeildar, olafur.s.haraldsson(hjá)vegagerdin.is.

Myndin sem fylgir fréttinni er frá Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar árið 2022.