Umhverfisstefna

Það er hlutverk Vegagerðarinnar að þróa og sjá um vegakerfið á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.

Vegagerðin hefur einsett sér að vera í fararbroddi í umhverfismálum og leggur áherslu á góða sambúð vegar og umferðar við umhverfi og íbúa.  Til að þetta nái fram að ganga hefur Vegagerðin  ákveðið að vinna samkvæmt eftirfarandi:

  • Við hönnun og byggingu vegakerfisins kappkostar Vegagerðin að varðveita fjölbreytni náttúrunnar, vistkerfi, náttúruminjar, náttúruverndarsvæði og menningarverðmæti, en um leið að tryggja öryggi vegfarenda.  
  • Vegagerðin gengur vel um umhverfið og leggur áherslu á að röskun lands á byggingartíma takmarkist við framkvæmdasvæði og að frágangur sé til fyrirmyndar.  Vegagerðin leitast við að lágmarka truflandi áhrif á lífríki á framkvæmdatíma.
  • Hönnun vega verði þannig að kröfur gildandi reglugerða um hljóðvist séu uppfylltar.
  • Vegagerðin vinnur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og annarri mengun frá starfseminni, en einnig frá umferð á þjóðvegum m.a. með veghönnun, styttingu leiða, bundnum slitlögum og staðsetningu náma.
  • Við innkaup á vörum og þjónustu tekur Vegagerðin tillit til umhverfissjónarmiða.
  • Vegagerðin nýtir auðlindir sem best og stefnir að því að minnka sorpmagn með því að vinna að aukinni endurnýtingu og endurvinnslu.  Jafnframt er öðrum úrgangi og spilliefnum fargað á viðurkenndan hátt.
  • Vegagerðin sér til þess að starfsmenn þekki umhverfisstefnuna og hafi þekkingu og hæfni til að vinna í samræmi við hana.
  • Vegagerðin sér til þess að birgjar og verktakar þekki umhverfisstefnuna og umhverfiskröfur Vegagerðarinnar.
  • Vegagerðin tryggir að starfsemin sé í samræmi við gildandi lög og reglur um umhverfismál.
  • Vegagerðin skilgreinir árlega mælanleg umhverfismarkmið, vaktar árangurinn og skráir  í umhverfisskýrslu til að tryggja stöðugar umbætur,  í samræmi við kröfur umhverfisstjórnunarstaðla ISO 14001.
15.02.2011



Útlit síðu: