Vegtegundir eru ákvarðandi fyrir tæknilega gerð vega. Grunntegundir eru eftirfarandi:
|
A
|
Vegir með tveim aðskildum akbrautum, a.m.k. fjórum akreinum öxlum og/eða kantsteinum. |
|
B
|
Vegir með tveimur akreinum, heildarbreidd => 8,5 m, öxlum > 0,5 m og/eða kantsteinum. |
|
C
|
Vegir með tveimur akreinum, 6,5m <= heildarbreidd < 8,5 m, og öxlum <= 0,5 m eða án axla. |
|
D
|
Vegir með einni akrein með eða án axla. |
|
F
|
Slóðir. |
Vegtegundir, lýsing, stofnvegir
(minni kröfur eru gerðar til annarra vegflokka).
|
A1
|
Vegir með tveimur aðskildum akbrautum og að minnsta kosti fjórum akreinum, öxlum og/eða kantsteinum. Breidd >= 34 m án kantsteina. ADU > 25.000 (dreifbýli) |
|
A2
|
Vegir með tveimur aðskildum akbrautum og að minnsta kosti fjórum akreinum, öxlum og/eða kantsteinum. Breidd = 27 m án kantsteina. ADU > 5.000 (dreifbýli). |
|
A3
|
Vegir með tveimur aðskildum akbrautum og að minnsta kosti fjórum akreinum, öxlum og/eða kantsteinum. Breidd = 22 m án kantsteina. ADU > 6.000 (dreifbýli). |
|
B1
|
Vegir með tveimur akreinum, öxlum og/eða kantsteinum. Breidd = 13,5 m án kantsteina. ADU > 4.000 (dreifbýli). |
|
B2
|
Vegir með tveimur akreinum, öxlum og/eða kantsteinum. Breidd = 10 m án kantsteina. ADU > 1.500 (dreifbýli). |
|
B3
|
Vegir með tveimur akreinum, öxlum og/eða kantsteinum. Breidd = 8,5 m án kantsteina. ADU > 600 (dreifbýli). |
|
C1
|
Vegir með tveimur akreinum. Breidd = 7,5 m án kantsteina. ADU > 100 (dreifbýli). |
Vegtegundir C2 og D gilda einkum um tengi- safn- og landsvegi
|
C2
|
Vegir með tveimur akreinum. Breidd = 6,5 m með öxlum. |
|
D
|
Vegir með einni akrein (með útskotum). |
Vegtegundir F1, F2 og F3 gilda aðeins um landsvegi
|
F1
|
Slóðir – Seinfær vegur, fær allri almennri umferð að sumarlagi. Einungis slóð, oftar en ekki lægri en landið til beggja hliða. Breidd um 4 m. Stórir lækir og ár brúaðar. Vegir þessir eru oft lokaðir á veturna vegna snjóa og vegna aurbleytu á þáatíð. |
|
F2
|
Slóðir – Lakfær vegur, fær fjórhjóladrifnum bílum, mjög öflugum fólksbílum og jepplingum. Einungis slóð, oftar en ekki lægri en landið til beggja hliða. Breidd um 4 m. Lækir og smáár óbrúaðar. Oft lokað á veturna vegna snjóa og aurbleytu á þáatíð. |
|
F3
|
Slóðir – Torfær vegur, einungis fær stórum og vel búnum fjórhjóladrifnum bílum, ofurjeppum. Slóð, oftar en ekki lægri en landið til beggja hliða, geta verið ójafnar, grýttar og með bleytuíhlaupum. Breidd um 4 m. Oft lokað á veturna vegna snjóa og aurbleytu á þáatíð. |

