Fréttir
  • Fjöldi samþykktra umsókna 2024 eftir rannsóknaflokkum.
  • Úthlutun fjárhæða 2024 eftir rannsóknaflokkum.
  • Fjöldi samþykktra umsókna 2024 eftir umsækjendum.
  • Úthlutun fjárhæða 2024 eftir umsækjendum.

Úthlutun úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar 2024

67 verkefni styrkt

12.4.2024

Úthlutun úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2024 er lokið en umsóknarfrestur rann út 2. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 113 umsóknir og sótt var um samtals 364,6 milljónir króna. Rannsóknaráð Vegagerðarinnar valdi 67 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni en sjóðurinn hafði 150 milljónir krónur til ráðstöfunar í ár.

Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsóknadeildar Vegagerðarinnar, segist vera ánægður með niðurstöðu úthlutunar í ár. „Þetta voru öll mjög frambærileg verkefni sem styðja markmið sjóðsins og valið var erfitt hjá ráðinu“ segir hann.  

Verkefnin sem hlutu styrk í ár tengjast ýmsum þáttum starfsemi Vegagerðarinnar. Rannsóknum Vegagerðarinnar er skipt upp í fjóra flokka: Mannvirki, umferð og umferðaröryggi, umhverfi og samfélag. Þessir flokkar endurspegla þau fjölbreyttu verkefni sem Vegagerðin fæst við. „Það er ánægulegt að sjá fjölgun verkefna í umhverfisflokki og enn skemmtilegra að sjá að hvernig umhverfismálin eru samþætt í aðra flokka,“ segir Ólafur.

Upplýsingar um verkefnin sem fengu styrk í ár má finna undir hlekknum: https://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/rannsoknir-og-throun/ransoknaverkefni/almenn2024/

Samþykktar umsóknir skiptust þannig:

  • Verkfræðistofur: 24 umsóknir – samtals 53,7 m.kr.
  • Vegagerðin: 8 umsóknir – samtals 16,7 m.kr.
  • Háskólar: 20 umsóknir – samtals 40,0 m.kr.
  • Aðrar opinberar stofnanir og fyrirtæki: 6 umsóknir – samtals 16,4 m.kr.
  • Aðrir: 9 umsóknir – 23,2 m.kr.