Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.5.2018
Brunaæfing í Norðfjarðargöngum í næstu viku
Þriðjudagskvöldið 29. maí verður haldin brunaæfing í Norðfjarðargöngum og verður göngunum lokað á meðan eða frá kl. 19:30 til 22:30.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.