14.2.2019
kl. 13:06
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.2.2019
Færð og aðstæður Suðvesturland: Það er hálka m.a. á Hellisheiði og í Þrengslum en krap á Mosfellsheiði og Suðurstrandarvegi.
Vesturland: Víða autt eða aðeins hálkublettir en þó hálka m.a. á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.
Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir víðast hvar.
Norðurland: Hálka eða snjóþekja, þó síst í Skagafirði.
Norðausturland: Víðast hálka en sumstaðar snjóþekja á útvegum.
Austurland: Hálka eða hálkublettir á fjallvegum og til landsins en mikið til greiðfært með ströndinni.
Suðausturland: Greiðfært austan til en hálka í Öræfum og þar fyrir vestan.
Suðurland: Snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumstaðar éljagangur.
Ábending um hálkuvarnirÞegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Vegur getur því verið háll áfram þrátt fyrir hálkuvarnir. Framkvæmdir á SuðurlandsvegiVegna
vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði
takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að
Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir
gatnamót að
Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri
enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á
framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk. Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/
|